1/2

Snæfell

Product code: W11323-900-XS
Ný útgáfa af Snæfell skeljakkanum í stuttu sniði. Þessi útgáfa er með 10.000mm vatnsheldni og öndunareiginleikar eru 30.000g/m2/24h.
68.000 ISK
Litur
Black
Stærð XS

Ný útgáfa af vinsæla Snæfell NeoShell® jakkanum okkar.

Upprunnalegi Snæfell jakkinn hefur unnið til bæði ISPO Outdoor Award og The Scandinavian Outdoor Award, fyrir einstaka eiginleika sem henta fyrir margskonar útivist og daglegt líf.

Snæfell NeoShell® er klassískur skeljakki með 10.000 mm. vatnsheldni og einstaka öndunareiginleika. 10.000 mm vatnsheldni þýðir að hægt er að nota jakkann í léttri úrkomu en ef um er að ræða mjög mikla úrkomu í lengri tíma mun efnið á einhverjum tímapunkti gefa eftir. Þetta snýst allt um jafnvægi og til að ná fram þeirri einstöku öndun sem Polartec Neoshell efnið býr yfir, þá getur vatnsheldnin ekki verið of mikil. Því meiri sem vatnsheldnin er, því síðri verður öndunin.

Jakkinn er rúmgóður og í hefðbundnu sniði. Sérmótuð hetta sem byrgir ekki sýn og með deri.