1/3

Snæfell

Product code: W11328-575-S
Ný útgáfa af Snæfell skeljakkanum í stuttu sniði. Þessi útgáfa er með 20.000mm vatnsheldni og öndunareiginleikar eru 20.000g/m2/24h.
69.000 ISK
Litur
Cold Desert
Stærð S
Aðeins 2 vörur til á lager.

Ný og endurbætt útgáfa af Snæfell skeljakkanum, nú í stuttu sniði, sem hentar vel í gönguferðir, á skíði, í hjólaferðir, eða einfaldlega í hvaða útivist sem er. Samspil aukinnar vatnsheldni, teygjanleika og einstakrar öndunnar gerir hann að jakka sem hentar vel við hinar ýmsu aðstæður.

Uppfærslan af hinum geysivinsæla Snæfell skeljakka, sem fyrst var framleiddur árið 2009, er nú framleiddur úr Polartec Bio Based Weather Protection efni sem er að hluta til er framleitt úr plöntubundnu efni í stað PFAS efna. Við þetta margfaldast vatnsheldni jakkans sem er nú með 20.000 mm vörn gegn bæði regni og vind en hefur einnig einstaka öndunareiginleika.

Jakkinn er framleiddur úr Polartec® Power Shield™ Pro efni sem er eitt fremsta efnið á markaðinum þegar kemur að teygjanleika og öndunareiginleikum. 20.000 mm vatnsheldni þýðir að hægt er að nota jakkann í mikilli úrkomu.

Snæfell er frábær fyrir alla hreyfingu og útivist í fjölbreyttu veðri. Jakkinn er með tvo rennda vasa að framan ásamt vasa að innan fyrir smærri verðmæti. Sérmótuð hetta sem byrgir ekki sýn og rúmar hjálm undir ásamt deri á hettu fyrir aukin þægindi og vörn gegn sól og vætu. Snúrugöng við hálsmál til að aðlaga snið. Aukaloftun í gegnum vasa og sérmótaðir olnbogar fyrir góða hreyfigetu.

Jakkinn er rúmgóður og í hefðbundnu sniði. Sérmótuð hetta sem byrgir ekki sýn og með deri.

SnæfellPolartec® Power Shield™ Pro buxur
53.000 ISK
Litur
SnæfellStuttermabolur (Unisex)
6.900 ISK
Litur
SnæfellGORE-TEX INFINIUM™ hanskar
9.500 ISK
Litur