1/3

Dyngja

Product code: W11385-969-M
87.000 ISK
Litur
Obsidian
Stærð M

Kápan er byggð á dúnúlpu sem við framleiddum fyrst fyrir 16 árum. Flíkin er hönnuð fyrir daglegt líf í borginni eða til hvers konar útivistar á veturna. Dyngja kemur einnig sem dúnúlpa, stutt dúnúlpa og dúnvesti. Tveir renndir vasar eru að framan, hár kragi og hetta sem að hægt er að taka af. Kápan er einangruð með endurnýttum gæsa- og andadún og er með 700 fill power.

Endurnýttur dúnn er fenginn úr notuðum dún fatnaði og yfirbreiðslum, hann er síðan hreinsaður og unninn á nánast sama hátt og nýr dúnn og eru því gæðin fyrsta flokks. Með því að endurnýta dún er líftími hans lengdur í stað þess að afurðin hefði farið í landfyllingu.