1/7

Dyngja

Product code: W61384-752-XS
Einstaklega hlýtt og létt vesti fyllt með hágæða endurunnum dún. Þessi útgáfa er með kassalaga vatteringu.
54.000 ISK43.200 ISK
Litur
Iceland Moss
Stærð XS
Fáar vörur til á lager.

Dyngju vestið er einstaklega hlýtt og létt, fyllt með hágæða endurunnum dún, en dúnninn er með 700 fill-power og veitir því einstaka einangrun miðað við þyngd. Vestið er frábært ytra lag yfir léttar peysur eða boli á mildari dögum. Þessi útgáfa er með kassalaga vatteringu.

Á vestinu er hár kragi fylltur með dún sem veitir auka skjól ásamt stormlista yfir rennilás sem kemur í veg fyrir að vindurinn blási í gegn. Tveir renndir vasar að framan, einn innri vasi og snúrúgöng með teygju í mitti svo hægt er að þrengja og aðlaga snið.

Endurunninn dúnn er fenginn úr notuðum dún fatnaði og yfirbreiðslum, hann er síðan hreinsaður og unninn á nánast sama hátt og nýr dúnn og eru því gæðin því fyrsta flokks. Með því að endurnýta dún er líftími hans lengdur í stað þess að afurðin hefði farið í landfyllingu.

Dyngju vestið hentar einstaklega vel fyrir daglegt íslenskt líf og hvers konar útivist.

Vestið er stórt í sniði og hentar öllum. Við mælum með að taka einni stærð minna en venjulega fyrir karla. Fyrir konur mælum við með að taka tveimur stærðum minna en venjulega.