Þýðir ekkert að snúa við

Guðrún Sveina Jónsdóttir

„Ég hef alltaf verið mikið fyrir útivist, frá því ég var mjög ung. Ég er frá Þingeyri við Dýrafjörð og þar var ekkert bíó eða neitt þegar ég var að alast upp þannig að ég var stöðugt á skíðum og skautum eða uppi um fjöll og firnindi sem krakki. Þannig hefur það verið síðan.“

Guðrún Sveina Jónsdóttir starfaði alla sína tíð sem ljósmóðir á kvennadeild Landspítalans og segist hlæjandi ekki kunna neitt annað. „Ég var alltaf á ferðinni þar líka. Það er ekkert hægt að sitja mikið við þá vinnu.“ Hún verður 79 ára í sumar en segist ekkert finna fyrir aldrinum. „Ég ætla Jökulfirðina í sumar og svo var dóttir mín að segja mér að við værum á leið í kajak-ferð. Ég er aldrei spurð hvort ég vilji fara með, það er bara gert ráð fyrir því!“

Þýðir ekkert að snúa við

Guðrún er rokin út að ganga klukkan sjö alla morgna - alein því það tefur hana að hafa fólk í eftirdragi - og hún hefur þrætt allar helstu gönguleiðir landsins. Þegar hún er ekki að ganga fer hún í ræktina eða spilar golf. Hún hefur gengið út um allan heim, t.a.m. á Tenerife og Grikklandi og Jakobsveginn fór hún ásamt dóttur sinni og ömmubarni árið 2016, alls 319 km á fjórtán dögum. Hún býr á sjöttu hæð og notar aldrei lyftuna.

Þar var ekkert bíó eða neitt þegar ég var að alast upp þannig að ég var stöðugt á skíðum og skautum eða uppi um fjöll og firnindi sem krakki.

„Mér líður hreinlega svo vel af þessu. Hreyfing og útivist er næring fyrir sál og líkama. Ég hugsa að heilsan væri ekki sú sama ef ég hreyfði mig ekki svona mikið. Auðvitað getur stundum verið erfitt að ganga upp brött fjöll eða þess háttar. En það þýðir ekkert að snúa við, bara að halda áfram. Bara drífa sig af stað.“

„En auðvitað skiptir máli að vera vel búin. Ég er alltaf í 66°Norður, stundum frá toppi til táar. Þetta er bara yndislegur klæðnaður sem hefur reynst mér vel í alls konar veðri og vindum, bæði hérlendis og til dæmis á Jakobsveginum.“

Sjálfbær lína innblásin af sjófataarfleifðinni okkar

Flot línan