Vatnsmýri
Vatnsmýri anorakkurinn er einstaklega hentugur fyrir ferðalanga sem vilja sameina notagildi og stíl. Anorakkurinn er gerður úr léttu og endingargóðu Polartec® Neoshell® efni sem er vatnsfráhrindandi, andar vel og er einstaklega vindþolið.
Jakkinn er stór í sniði og hefur tvo rennilása á hliðunum til að hleypa hita út og fersku lofti inn ásamt einum rúmgóðum vasa að framan. Hægt er að setja hettuna í kragann. Á jakkanum eru 66°Norður og kríu lógó með endurskini fyrir aukinn sýnileika.
Auðvelt er að athafna sig í honum og vera á ferðinni. Anorakkurinn hentar vel fyrir vetraríþróttir, eins og skíði, sem og fyrir dagsdaglega notkun.
Herra fyrirsætan er 184 cm á hæð og hann er í stærð L
Dömu fyrirsætan er 180 cm á hæð og hún er í stærð M
- Framleiðsluábyrgð Lestu ábyrgðarskilmálana okkar
- Ytra lag - Aðal
53% polyamide, 47% polyester | Polartec® Neoshell®
- Ytra lag - Fóður
100% endurunnið polyamide
- Innra lag - Einangrun
100% endurunnið polyethylene
- Hentar fyrir
Skíði
- Stíll
Einangraðir jakkar
Frí heimsending á öllum pöntunum yfir 20.000 ISK
Samkvæmt reglum um rafræn kaup má falla frá kaupum án þess að tilgreina nokkra ástæðu innan 14 daga frá afhendingu vörunnar fyrir fulla endurgreiðslu.
Upplýsingar um skilareglur hér.